Fimm leikir fara fram í íslenska boltanum í dag en síðari leikurinn í undanúrslitum Lengjubikars kvenna fer fram í dag.
Breiðablik og Þór/KA mætast í síðari undanúrslitaleik A-deildar Lengjubikars kvenna í kvöld en leikurinn fer fram í Fífunni. Þessi lið mættust í úrslitum bikarsins síðasta sumar þar sem Breiðablik hafði betur en ljóst er að sigurvegarinn úr þessum leik mætir Stjörnunni.
Undanúrsitin í B-deild karla fara þá fram en Völsungur og Leiknir F. mætast þá meðan ÍR og Fjarðabyggð mætast.
Í undanúrslitum C-deildar mætast Víðir og Álftanes á meðan Berserkir og KFG mætast í hinum undanúrslitaleiknum.
Leikir dagsins:
Lengjubikar A-deildar kvenna:
18:00 Breiðablik - Þór/KA (Fífan)
Lengjubikar B-deild karla:
14:00 Völsungur - Leiknir F. (Húsavíkurvöllur)
16:00 ÍR - Fjarðabyggð (Hertz-völlurinn)
Lengjubikar karla C-deild:
16:00 Víðir - Álftanes (Garðskagavöllur)
19:00 Berserkir - KFG (Víkingsvöllur)
Athugasemdir