Breiðablik 2 - 0 Þór/KA
1-0 Hildur Sif Hauksdóttir ('2 )
2-0 Guðrún Arnardóttir ('30 )
1-0 Hildur Sif Hauksdóttir ('2 )
2-0 Guðrún Arnardóttir ('30 )
Breiðablik sigraði Þór/KA með tveimur mörkum gegn engu í Fífunni í undanúrslitum í A-deild Lengjubikars kvenna í dag.
Hildur Sif Hauksdóttir kom Blikum yfir strax á annarri mínútu leiksins og þá bætti Guðrún Arnardóttir við öðru marki tæpum hálftíma síðar.
Það er því ljóst að Breiðablik mætir Stjörnunni í úrslitaleik Lengjubikarsins en Stjarnan sigraði Val í gær með tveimur mörkum gegn engu.
Úrslitaleikurinn fer fram í Egilshöll á sunnudag klukkan 19:00 en ljóst er að þar verður hörkuleikur í boði fyrir áhorfendur.
Athugasemdir