Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 24. apríl 2014 11:05
Elvar Geir Magnússon
Moyes við leikmenn: Þið spilið eins og stelpur
Mynd: Getty Images
David Moyes sakaði leikmenn sína hjá Manchester United um að reyna að láta sig vera rekinn með því að spila illa. Hann sagði þeim líka að þeir „spiluðu eins og stelpur".

Þetta kemur fram í The Sun í morgun en athygli vakti að Moyes þakkaði leikmönnum ekki í fréttatilkynningu sinni eftir að hann var rekinn frá United.

„Þetta er ekki einu sinni karlmenn gegn strákum. Þetta eru karlmenn gegn stelpum," sagði Moyes reiður í klefanum þegar liðið var 2-0 undir gegn Manchester City.

„Þið eruð að reyna að láta reka mig," sagði Moyes við leikmenn eftir að liðið féll úr deildabikarnum fyrir Sunderland.

Háværar sögusagnir hafa verið í gangi um slæmt samband milli Moyes og leikmanna. Skotinn er sagður hafa mistekist algjörlega að vinna sér inn virðingu leikmanna.

Manchester United hefur gengið afleitlega á leiktíðinni og var Moyes formlega rekinn í upphafi vikunnar. Ryan Giggs stýrir liðinu þar til nýr stjóri finnst.
Athugasemdir
banner
banner
banner