Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 24. apríl 2014 12:15
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmaður Liverpool loksins á leið í klippingu
Mynd: Mirror
Uke Krasniqi, stuðningsmaður Liverpool, er á leið í klippingu í fyrsta sinn í ellefu ár. Hann var búinn að lofa því að klippa ekki hár sitt þar til Liverpool myndi lyfta Englandsmeistarabikarnum.

Krasniqi hefur séð sína menn vinna Meistaradeildina og FA-bikarinn en nú stefnir allt í að hinn langþráði Englandsmeistaratitill komi í hús.

Krasniqi var í viðtali í vikunni þar sem hann er viss um að klippingin sé handan við hornið.

„Síðan 2003 byrjaði ég að safna hári. Liverpool hefur unnið alla titla síðan þá nema deildina. Nú er liðið ótrúlega nálægt," segir hinn geðþekki Krasniqi.
Athugasemdir
banner
banner