Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. apríl 2015 08:30
Daníel Freyr Jónsson
Jovetic og Toure saman til Inter í sumar?
Stevan Jovetic.
Stevan Jovetic.
Mynd: Getty Images
Inter vill fá Svartfellinginn Stevan Jovetic að láni frá Manchester City í sumar með það í huga að kaupa leikmanninn síðar meir.

Jovetic hefur ekki náð að standast væntingar síðan hann var keyptur frá Fiorentina árið 2013, en hann hfur einungis spilað 39 leiki fyrir félagið.

Inter mun bjóðast til að taka Jovetic á árslöngum lánssamninig, auk þess sem félagið vill síðan kaupa hann á 15 milljónir punda.

Það gæti því farið svo að Roberto Mancini, stjóri Inter og fyrrum stjóri City, fái tvo leikmenn frá sínu gamla félagi þar sem Yaya Toure hefur verið sterklega orðaður við Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner