Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 24. apríl 2015 17:45
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið West Brom og Liverpool
Mynd: Guardian
West Bromwich Albion og Liverpool eigast við í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:00 á morgun.

Miðjumaðurinn Youssouf Mulumbu hjá WBA klárar afplánun á þriggja leikja banni en Andre Wisdom er ekki löglegur gegn móðurfélagi sínu.

Craig Dawson hefur jafnað sig eftir minniháttar meiðsli.

Hjá Liverpool eru Daniel Sturridge, Mamadou Sakho og Lucas Leiva áfram fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Adam Lallana og Jon Flanagan eru tæpir en þeir mættu nýlega aftur til æfinga en þá er Jordon Ibe mættur aftur eftir að hafa verið ólöglegur í bikarnum um síðustu helgi.

Liverpool er í fimmta sæti og lætur sig dreyma um Meistaradeildarsæti en West Brom situr í þrettánda sæti.

Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.
Athugasemdir
banner
banner