banner
   fös 24. apríl 2015 16:37
Elvar Geir Magnússon
Óskar Örn Hauksson aftur í KR (Staðfest)
Óskar Örn Hauksson.
Óskar Örn Hauksson.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
FC Edmonton í Kanada hefur tilkynnt að Óskar Örn Hauksson sé kominn aftur í raðir KR og muni leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

„Það eru vonbrigði fyrir okkur að þetta hafi ekki gengið eins og við vildum," segir þjálfari Edmonton en Óskar gekk í raðir félagsins í vetur.

„Ég gat ekki lofað Óskari byrjunarliðssæti í hverri viku og maður með hans reynslu vill spila í hverri umferð. Ég get ekki lofað neinum föstu sæti sem stendur."

Óskar snýr því aftur til KR og býr sig undir að vera með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar en liðið mætir FH í fyrstu umferð 4. maí.

Eins og allir vita styrkir þetta KR liðið gríðarlega fyrir komandi átök.



Athugasemdir
banner
banner
banner