Thiago Alcantara, leikmaður Bayern München í Þýskalandi, er spenntur fyrir því að mæta sínu gamla félagi, Barcelona, í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Bayern og Barcelona mætast í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á meðan Juventus og Real Madrid eigast við.
Thiago, sem er uppalinn hjá Barcelona, mætir sínu gamla félagi en bróðir hans, Rafinha, leikur með Börsungum.
„Það verður sannur heiður að spila á Nou Camp en það hefði ekki skipt hverjum við hefðum mætt því þetta eru allt erfiðir andstæðingar," sagði Thiago.
Athugasemdir