Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 24. apríl 2015 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Stefan Bell sá um Schalke
Mainz var ekki í vandræðum með Schalke
Mainz var ekki í vandræðum með Schalke
Mynd: Getty Images
Mainz 2 - 0 Schalke 04
1-0 Stefan Bell ('28 )
2-0 Stefan Bell ('31 )

Mainz lagði Schalke með tveimur mörkum gegn engu í þýsku deildinni í kvöld en Stefan Bell gerði bæði mörkin.

Bell kom Mainz yfir strax á 28. mínútu leiksins og tók hann ekki langan tíma að bæta við öðru marki en það kom þremur mínútum síðar.

Schalke tókst ekki að svara fyrir sig og lauk leiknum með 2-0 sigri Mainz. Liðið situr í 8. sæti deildarinnar með 37 stig á meðan Schalke er með 42 stig í 5. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner