Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. apríl 2015 19:05
Brynjar Ingi Erluson
Van Gaal: Vil ekki ræða um Depay við fjölmiðla
Memphis Depay
Memphis Depay
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, neitaði að ræða um Memphis Depay, leikmann PSV Eindhoven, á blaðamannafundi í dag.

Depay var lykilmaður í liði PSV sem vann hollensku úrvalsdeildina á dögunum en hann þykir vera meðal efnilegustu leikmönnum heims í dag.

Líklegt þykir að leikmaðurinn yfirgefi PSV í sumar og fari til stærra félags en Manchester United hefur verið helst í umræðunni.

„Ég vil ekki ræða þetta við fjölmiðla. Þið vitið svar mitt og ég mjög gott samband við leikmenn en ég get þrátt fyrir það ekki keypt alla leikmenn sem ég hef þjálfað," sagði Van Gaal.
Athugasemdir
banner
banner