„Mér fannst við allt í lagi í fyrri hálfleik en þetta var einbeitingarleysi í markinu. Í seinni hálfleik vantaði aðeins hreyfingu á fremstu menn en við vorum alls ekki síðri en Valur í þessum leik," sagði Bergsveinn Ólafsson, miðvörður FH, eftir tapið gegn Val í Meistarakeppni KSÍ í kvöld.
Lestu nánar um leikinn
Lestu nánar um leikinn
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 FH
Telur hann að Valur hafi lið sem geti veitt FH samkeppni um titilinn í sumar?
„Já Valur er með frábært lið. Það vita flestir á Íslandi. Þeir eiga alveg séns."
FH-ingar hafa verið að leika með þriggja manna vörn á undirbúningstímabilinu en í dag vantaði Kassim Doumbia og liðið lék 4-3-3.
„Það er fínt að hafa bæði þessi kerfi, við kunnum þau bæði og spilum þau vel. Það er fínt að hafa þessi tvö kerfi."
FH á fyrsta leik í Pepsi-deildinni á sunnudaginn gegn ÍA á Akranesi.
„Það er alltaf helvítis stemning í manni þegar það er stutt í mót. Það verður hörkuleikur á Skaganum og veisla að þetta sé að byrja." sagði Bergsveinn en viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir