Ander Herrera, miðjumaður Manchester United, segir að leikur liðsins gegn grönnum þeirra í Manchester City sé mikilvægasti leikur tímabilsins.
Bæði liðin hafa misst af titlinum þetta árið og eru nú í harðri baráttu um að enda í einu af efstu fjórum sætunum sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu að ári.
Manchester United geta þó náð Meistaradeildarsæti mistakist liðinu að enda í efstu fjórum sætunum en það geta þeir gert með því að vinna Evrópudeildina. En liðið er komið í undanúrslit og mæta þar Celta Vigo.
„Þetta verður leikur tímabilsins fyrir bæði lið," sagði Herrera „Við erum einu stigi á eftir þeim. Takist okkur að sigra þá eigum við góða möguleika að enda í einu af efstu fjórum sætunum. Ef að þeir vinna hinsvegar þá er þetta orðið ansi erfitt fyrir okkur. Ég endurtek þetta verður leikur tímabilsins." sagði Herrera sem að áttar sig á mikilvægi leiksins.
„Verður þetta leikurinn sem ræður úrslitum þegar uppi er staðið? Alveg örugglega. Bæði lið eru í góðu formi og eru að spila virkilega vel, svo að ef að annað liðið vinnur verður það erfitt fyrir hitt þar sem að hvorugt liðið er að fara að tapa mörgum stigum þar sem eftir lifi móts." sagði Herrera að lokum.

Athugasemdir