Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 24. apríl 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Wenger kallar Alexis dýr: „Hann verður áfram"
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var hæstánægður með Alexis Sanchez eftir að hann lagði upp sigurmarkið gegn Manchester City í undanúrslitum enska bikarsins í gær.

Alexis verður samningslaus sumarið 2018 en hann hefur verið orðaður við brottför frá Arsenal eftir núverandi tímabil.

Wenger segir hins vegar að Alexis verði áfram hjá Arsenal næsta vetur.

„Hann er dýr sem er alltaf tilbúið að drepa andstæðinginn. Hann gefst aldrei upp," sagði Wenger eftir leikinn í gær.

„Hann verður hér á næsta ári því hann er samningsbundinn og vonandi náum við að framlengja samninginn."
Athugasemdir
banner
banner
banner