Agnar Darri Sverisson hefur ákveðið að spila með Magna frá Grenivík í Inkasso-deildinni í sumar.
Agnar Darri er erlendis í námi í augnablikinu en hann mun byrja að spila með Magna í fjórðu umferð Inkasso-deildarinnar. Í fjórðu umferð fer Magni í heimsókn á Selfoss.
Agnar Darri er erlendis í námi í augnablikinu en hann mun byrja að spila með Magna í fjórðu umferð Inkasso-deildarinnar. Í fjórðu umferð fer Magni í heimsókn á Selfoss.
Agnar er 23 ára kantmaður en hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki einmitt með Magna í 3. deild árið 2011.
Hann fór árið 2012 í Víking Reykjavík en spilaði aftur 2013 með Magna. Hann á 20 leiki með Víkingum í Pepsi-deildinni en hann hefur einnig leikið með Þór og BÍ/Bolungarvík á sínum ferli.
Magni er nýliði í Inkasso-deildinni en fyrsti leikur liðsins í deildinni í sumar verður við HK í Kórnum 5. maí.
Komnir:
Agnar Darri Sverrisson frá Víkingi R.
Davíð Rúnar Bjarnason frá KA
Gunnar Örvar Stefánsson frá Þór
Sigurður Marinó Kristjánsson frá Þór
Steinþór Már Auðunsson frá Þór
Farnir:
Dagur Már Óskarsson hættur
Kristján Sigurólason hættur
Ýmir Már Geirsson í KA (Var á láni)
Athugasemdir