Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. apríl 2018 18:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Henri Michel látinn sjötugur að aldri
Henri Michel skoraði 4 mörk fyrir Frakkland
Henri Michel skoraði 4 mörk fyrir Frakkland
Mynd: Getty Images
Henri Michel, fyrrum miðjumaður og þjálfari franska landsliðsins lést í morgun, sjötugur að aldri.

Michel á 58 landsleiki að baki fyrir Frakkland auk þess að þjálfa liðið á árunum 1984 til 1988 þar sem liðið vann gull á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984.

Hann spilaði lengst af með Nantes í Frakklandi þar sem hann varð þrisvar deildarmeistari.

Michel á langan feril að baki sem landsliðsþjálfari, auk Frakklands stjórnaði hann Kamerún, Marokkó, Túnis og Fílabeinsströndinni á HM.

Hann þjálfaði einnig Sameinuðu Arabísku Furstadæmin, Miðbaugs-Gíneu og Kenía á farsælum ferli sem spannaði 30 ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner