Fótbolti.net spáir HK/Víkingi 10. sæti í Pepsi-deild kvenna í sumar. Í tengslum við spána sýnir einn leikmaður í hverju liði á sér hina hliðina. Í HK/Víkingi er það Margrét Sif Magnúsdóttir.
Fullt nafn: Margrét Sif Magnúsdóttir
Gælunafn sem þú þolir ekki: Max
Aldur: 24 ára
Hjúskaparstaða: Single
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2009 þegar ég var 15 ára
Uppáhalds drykkur: Vatnið klikkar ekki!
Uppáhalds matsölustaður: Bianco á Tenerife
Hvernig bíl áttu: Ford Fiesta
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends, One Tree Hill & Survivor eins & er!
Uppáhalds tónlistarmaður: Ed Sheeran
Uppáhalds samskiptamiðill: Instagram
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: Guðrún Veiga er góð
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: kökudeig, hvítt súkkulaði og þristur er gott combo
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Frá Dagný: Já skil þig, ekkert mál :) hittumst fljótlega :)
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: aldrei að segja aldrei en líklegast KR ?
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Harpa Þorsteinsdóttir er oftast svindl leikmaður!
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Elísabet Guðmundsdóttir Fjölni, hún er alltaf tuðandi ;)
Sætasti sigurinn: ætli það hafi ekki verið síðasti leikurinn í fyrra á móti Selfoss, sigur og við urðum deildameistarar og tryggðum okkur upp í Pepsi og clean úrslitaleikur :)
Mestu vonbrigðin: að falla með FH úr Pepsi 2014 á Akureyri og þurfa að keyra í bæinn, það var ein löng rútuferð!
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Katrín Ómarsdóttir
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: laga dómaramálin og bæta jafnrétti, sláandi munur á mörgum þáttum á milli kynjanna þrátt fyrir jafnréttisstefnu hjá KSÍ ;)
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Erfitt að velja á milli Karólínu Leu & Karólínu Jack þær eru báðar mjög efnilegar
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Þeir eru nú nokkrir fallegir þarna í HK & Víking ;)
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Maggý Lárentsínusdóttir, falleg innan sem utan!
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Isabellurnar fá þennan titil
Uppáhalds staður á Íslandi: Hafnarfjörðurinn!
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Vorum í Tyrklandi að spila á móti CSKA Moskva og það var komin smá harka í leikinn og dómarinn var orðinn þreyttur á okkur og sagði Laufey Björns að þegja og stuttu seinna sagði hann mér að hætta tala svona mikið, þegar ég var nú bara að stýra liðinu!
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: bursta tennurnar
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: já aðallega handbolta
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: er núna í Nike Mercurial & Adidas X
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Sögu
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Nína er geggjað lag, svo voru Olsen bræður með Fly on the wings of love líka góðir!
Vandræðalegasta augnablik: það var frekar vandræðanlegt þegar ég var ný búin að skipta yfir í HK/Víking frá FH og var að spila minn fyrsta leik með þeim og ég var búin að kalla nokkrum sinnum “FH” þegar við áttum innköst eða horn og dómarinn þurfti að leiðrétta mig og sagði þú ert að spila með HK/Víking.
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Maggý klárlega og svo myndi ég þurfa að draga á milli Gígju, Laufeyjar Elísu, Bjarkar og Laufeyjar Björns.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: ég á grunnskólametið í cooper testi í Setbergsskóla og þar með náði ég að hlaupa lengra en Gylfi Sig.
Athugasemdir