Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Stjarnan spilar úrslitaleik á Akureyri
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Það er stór dagur í kvennaboltanum í dag þar sem Þór/KA tekur á móti Stjörnunni í úrslitaleik Lengjubikarsins.

Þór/KA hafði betur gegn Blikum í undanúrslitum á meðan Stjarnan lagði Val að velli.

Bæði lið áttu lélega riðlakeppni þar sem Þór/KA tapaði tveimur og Stjarnan þremur. Blikar og Valur fóru gegnum riðilinn taplaust.

HK/Víkingur á svo leik við Grindavík í lokaumferð B-deildar Lengjubikars kvenna.

Leikir dagsins:
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
17:15 Þór/KA-Stjarnan (Boginn)

Lengjubikar kvenna - B-deild
19:00 HK/Víkingur-Grindavík (Víkingsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner