Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. apríl 2018 13:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tískusíða segir Ísland með einn besta búninginn
Icelandair
Leikmenn Íslands í nýja búningnum.
Leikmenn Íslands í nýja búningnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tískuvefsíðan Hypebeast hefur tekið saman lista yfir tíu flottustu búninganna sem spilað veðrur í á HM í sumar. Og viti menn aðalbúningur íslenska landsliðsins kemst þar á lista.

Skiptar skoðanir hafa verið á nýju treyjunni og var breska götublaðið Mirror ekki sérstaklega hrifið af henni. Hjá Hypebeast fær hún hins vegar góða dóma.

Íslenski aðalbúningurinn er á meðal þeirra 10 bestu á mótinu samkvæmt Hypebeast en búningurinn var frumsýndur í æfingaferð landsliðsins í Bandaríkjunum á dögunum.

Á meðal annarra búninga sem eru í topp 10 hjá vefsíðunni eru aðalbúningur þýska landsliðsins, varabúningar Króatíu og Senegal og aðalbúningur Nígeríu sem hefur fengið mikla athygli.

Fyrsti leikur Íslands á HM verður gegn Argentínu í Moskvu þann 16. júní næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner