Heimild: Græni herinn
Keppni í B-riðli 1. deildar kvenna hófst í gærkvöldi með þremur leikjum. Grindvíkingar gerðu góða ferð vestur í bæ og sóttu þangað þrjú stig. Sömu sögu er að segja af Fjölnisstúlkum sem unnu góðan sigur í Keflavík. Þá fóru Völsungar á kostum í 9-1 heimasigri á Sindra.
KR 3-4 Grindavík
0-1 Sara Hrund Helgadóttir ('21, víti)
0-2 Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir ('22)
1-2 Sonja Björk Jóhannsdóttir ('24)
1-3 Anna Þórunn Guðmundsdóttir ('28)
1-4 Anna Þórunn Guðmundsdóttir ('56)
2-4 Selja Ósk Snorradóttir ('60)
3-4 Sigríður María Sigurðardóttir ('75)
Grindvíkingar unnu sanngjarnan sigur á KR í gærkvöldi en þær gulu mættu einfaldlega mun betur stemmdar til leiks. Sara Hrund Helgadóttir skoraði fyrsta mark leiksins eftir rúmlega 20 mínútna leik með marki úr vítaspyrnu og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir bætti við öðru marki strax í næstu sókn.
Sonja Björk Jóhannsdóttir var besti leikmaður KR í leiknum og hún náði að minnka muninn stuttu síðar eftir að hafa sloppið ein í gegn. Fjórum mínútum síðar skoraði Anna Þórunn Guðmundsdóttir þriðja mark Grindavíkur og kom liðinu sínu þannig í þægilega stöðu. Markið var einkar laglegt og kom beint úr aukaspyrnu.
KR-ingar gerðu 4 breytingar á liði sínu í hálfleik en það skilaði litlu og Anna Þórunn skoraði fjórða mark Grindavíkur á 56. mínútu. Heimakonur reyndu hvað þær gátu að komast aftur inn í leikinn og Selja Ósk Snorradóttir minnkaði muninn í 4-2 þegar um hálftími lifði leiks. Hin efnilega Sigríður María Sigurðardóttir skoraði þriðja mark KR með glæsilegu einstaklingsframtaki og hleypti þannig spennu í leikinn síðasta korterið.
KR-liðið sótti meira undir lok leiks en Grindavíkurliðið varðist skynsamlega og sigldi stigunum þremur í höfn.
Keflavík 0-6 Fjölnir
0-1 Erla Dögg Aðalsteinsdóttir ('10)
0-2 Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir ('23)
0-3 Sonný Lára Þráinsdóttir ('42, víti)
0-4 Sonný Lára Þráinsdóttir ('52, víti)
0-5 Þórhildur Svava Einarsdóttir ('81)
0-6 Íris Ósk Valmundsdóttir ('89)
Fjölnir gerði góða ferð til Keflavíkur og vann 6-0 sigur á ungu og gjörbreyttu Keflavíkurliði. Erla Dögg Aðalsteinsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins eftir að hafa komist ein inn fyrir Keflavíkurvörnina og Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir bætti við marki um miðjan fyrri hálfleikinn með góðu skoti utan af hægri kanti.
Undir lok fyrri hálfleiks fengu gestirnir dæmda vítaspyrnu og fyrirliðinn og markvörðurinn Sonný Lára Þráinsdóttir fór á punktinn. Hún skoraði örugglega úr fastri spyrnu sinni og kom Fjölni í 3-0.
Sonný Lára fékk svo annað tækifæri snemma í síðari hálfleik en aftur var dæmd vítaspyrna á Keflavík. Líkt og í fyrri spyrnunni var Sonný öryggið uppmálað og setti boltann í slánna og inn.
Fjölnisstúlkur bættu svo við tveimur mörkum undir lokin. Fyrst skoraði Þórhildur Svava Einarsdóttir laglegt mark eftir að hafa sloppið í gegnum Keflavíkurvörnina og síðasta mark leiksins skoraði Íris Ósk Valmundsdóttir með skalla eftir hornspyrnu.
Völsungur 9-1 Sindri
1-0 Helena Rós Þórólfsdóttir ('22)
2-0 Helga Björk Heiðarsdóttir ('27)
2-1 Guðrún Kristín Stefánsdóttir ('42)
3-1 Laufey Elísa Hlynsdóttir ('45)
4-1 Dagbjört Ingvarsdóttir ('53)
5-1 Hulda Ósk Jónsdóttir ('60)
6-1 Hulda Ósk Jónsdóttir ('75)
7-1 Jóney Ósk Sigurjónsdóttir ('76)
8-1 Laufey Elísa Hlynsdóttir ('77)
9-1 Brynja M Brynjarsdóttir ('89)
Völsungar byrja mótið með látum en þær fóru illa með Sindrastúlkur. Fyrsta mark leiksins lét bíða eftir sér fram á 22. mínútu en þá skoraði Helena Rós Þórólfsdóttir beint úr aukaspyrnu. Helga Björk Heiðarsdóttir bætti við mark 5 mínútum síðar þegar hún skoraði með viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf.
Guðrún Kristín Stefánsdóttir náði að klóra í bakkann fyrir Sindrastúlkur þegar hún skoraði með laglegu langskoti en heimastúlkur voru fljótar að kæfa allar vonir gestanna um endurkomu og Laufey Elísa Hlynsdóttir svaraði með marki úr teignum.
Í síðari hálfleik var komið að hinni bráðefnilegu Huldu Ósk Jónsdóttur að láta til sín taka. Hún lagði upp mark fyrir Dagbjörtu Ingvarsdóttur áður en að hún skoraði sjálf tvívegis. Síðara mark Huldu kom á 75. mínútu og í kjölfarið fylgdu tvö mörk með mínútu milliblili. Fyrst skoraði Jóney Ósk Sigurjónsdóttir og síðan bætti Laufey Elísa við sínu öðru marki.
Það var svo Brynja M. Brynjarsdóttir sem skorað níunda og síðasta mark Völsungs og setti þannig rjómann á kökuna. Frábær frammistaða hjá heimakonum sem koma öflugar til leiks í ár.
Hér að neðan má sjá myndir frá heimasíðu Græna hersins (http://www.640.is/graeni-herinn/):




