Juventus hampaði ítalska meistaratitlinum á liðnu tímabili í A-deildinni. Björn Már Ólafsson er sérfræðingur Fótbolta.net um ítalska boltann og fengum við hann til að setja saman úrvalslið tímabilsins.
Markvörður:
Mikil samkeppni ríkti um markvarðarstöðuna. Buffon heldur uppteknum hætti sem einn besti markvörður heims, Handanovic var einn af fáum leikmönnum Inter sem stóð sig vel allt tímabilið en ég endaði á því að velja Marchetti einfaldlega vegna þess hvað hann hefur unnið mörg stig fyrir Lazio upp á eigin spýtur.
Varnarmenn:
Ítalska deildin missti frábæran brasilískan varnarmann síðastliðið sumar með brottför Thiago Silva, en deildin græddi líka einn slíkan með tilkomu Marquinhos til Roma. Þótt hann sé aðeins fæddur 1994 henti Zeman honum inn í byrjunarliðið án þess að hika og hann virðist standast allar væntingar og gott betur. Síðasti varnarmaður sem ég man eftir að hafa slegið rækilega í gegn undir stjórn Zdenek Zemans var Alessandro Nesta hjá Lazio. Ætli Marquinhos nái sömu hæðum?
Andrea Barzagli er kletturinn í Juventusvörninni í ár sem fyrr. Í ár hefur hann þurft að bera aukna ábyrgð vegna töluverðrar fjarveru Chiellini en hann axlaði þá ábyrgð af stakri prýði.
Hugo Campagnaro hefur sýnt miklar framfarir þetta tímabil frá því sem maður er vanur að sjá frá honum. Vörn Napoli hefur átt það til að vera svolítið klaufsk og mistæk en í ár er það Campagnaro sem hefu bundið hana saman auk þess sem hann er fínn sendingamaður og því tilvalinn í að vera sá varnarmaður sem hefur sóknarleik liðsins með klókum sendingum fram völlinn.
Miðjumenn:
Einn efnilegasti leikmaðurinn í Serie-A er Erik Lamela og loksins hefur hann sprungið almennilega út. Það þurfti kanski Zdenek Zeman til þess, en Lamela hefur verið frábær þetta tímabil og skorað mörg mikilvæg mörk.
Á miðjunni hef ég leikmann sem fengi mitt atkvæði sem leikmaður ársins í Serie-A, Arturo Vidal. Hann hefur verið framúrskarandi í annars frábæru Juventus-liði og oft bjargað mikilvægum stigum fyrir félagið. Duglegur, markheppinn og góður bæði varnar- og sóknarlega.
Borja Valero kom til Fiorentina eftir að guli kafbáturinn Villarreal sökk í fyrra. Það hefur lengi loðað við spænska leikmenn að þeir floppi á Ítalíu, en Valero fer langleiðina með að aflífa þá mýtu. Ótrúlega hreyfanlegur leikmaður og mikilvægur hlekkur í léttleikandi miðjuspili félagsins frá Flórens.
Antonio Candreva er leikmaður sem stóð sig ávalt vel í minni klúbbum á Ítalíu, á borð við Livorno og Parma, en tókst aldrei að slá í gegn hjá sterkari liðum eins og Juventus og Udinese. Honum hefur þó tekist að snúa við blaðinu hjá Lazio því hann hefur átt stórgott tímabil og er meira að segja kominn í landsliðið. Er kraftmikill og fljótur leikmaður með stórhættulegan skotfót.
Sóknarmenn:
Marek Hamsik er auðvelt val fyrir aftan framherjana. Stoðsendingakóngur deildarinnar heldur uppteknum hætti frá fyrri árum og líklegt verður að teljast að hann muni færa sig um set fyrir næsta tímabil.
Il capitano er í fremstu víglínu þetta árið. Hann er meðal hæstu manna í einkunnagjöf flestra ítalskra íþróttablaða, hann er með næst flestar stoðsendingar, aðeins Hamsik er með fleiri, og hann er með 12 mörk. Margt af þessu getur hann þakkað endurkomu læriföður síns, Zemans en Totti er sem fyrr magnaður áhorfs með líklega flestar heppnaðar hælsendingar í öllum deildum í Evrópu.
Edinson Cavani er markakóngur deildarinnar þetta árið en hann skoraði heil 29 mörk. Ekki slæmt miðað við að hann átti einnig markaþurrð á tímabilinu sem entist meira en 700 mínútur. El Matador sá til þess að Napoli náði 2. Sætinu af frekar miklu öryggi.
Bekkurinn:
Gianluigi Buffon
Samir Handanovic
Giorgio Chiellini
Gabriel Paletta
Davide Astori
Fabio Grosso*
Juan Cuadrado
Riccardo Montolivo
Paul Pogba
Alessio Cerci
Miroslav Klose
Stephan El Shaarawy
Di Natale
Þjálfari: Vincenzo Montella - Fiorentina
*Glöggir áhugamenn vita að Fabio Grosso er hættur knattspyrnuiðkun, en hann á samt öruggt sæti í liði ársins hjá mér af augljósum ástæðum.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |


