Það er með mikilli ánægju sem við tilkynnum Domino‘s sem opinberan styrktaraðila Fantasy-deildar Fótbolta.net. Ber deildin nú því nafnið Draumaliðsdeild Domino‘s.
Draumaliðsdeildin eflist við þennan liðsstyrk og við bætast skemmtilegir vinningar og uppákomur í samstarfi við Domino‘s.
Sigurvegari hverrar umferðar fær pizzaveislu í boði Domino‘s og verða fleiri vinningar tilkynntir á næstunni.
Domino‘s verður svo með frábær tilboð í gangi í sumar fyrir þátttakendur í Draumaliðsdeildinni og hvetjum við því alla til að skrá sig á Draumadeildarpóstlista Domino‘s hér.
Athugið að aðeins þeir sem skrá sig fá þessi sértilboð.
Fimmta umferðin í Draumaliðsdeildinni hefst á sunnudag en markaðurinn fyrir félagaskipti lokar þá klukkan 17:00. Vertu klár með þitt lið fyrir þann tíma!
Draumaliðsdeild Domino's er opinber samstarfsaðili Íslensks Toppfótbolta og er starfræktur með leyfi hans.




