Varnarmaðurinn Elfar Freyr Helgason mun yfirgefa herbúðir Randers þegar samningur hans við félagið rennur út í næsta mánuði.
Elfar er einn af sex leikmönnum sem fara frá Randers í sumar en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Elfar er einn af sex leikmönnum sem fara frá Randers í sumar en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Elfar gekk í raðir Randers í febrúar en hann kom ekki við sögu hjá liðinu í dönsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Áður hafði Elfar leikið með Stabæk í Noregi síðari hlutann í fyrra en hann var á mála hjá AEK Aþenu í eitt ár þar á undan.
Theódór Elmar Bjarnason er á mála hjá Randers en liðið endaði í þriðja sæti í dönsku úrvalsdeildinni á dögunum.




