Víkingur Reykjavík sýndi frábæra takta í kvöld þegar liðið vann magnaðan 5-2 útisigur gegn Fjölni í 1. deildinni. Víkingar spiluðu heimamenn sundur og saman í leiknum.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 5 Víkingur R.
„Við vorum algjörlega yfirspilaðir í þessum leik. Við gáfum ódýr mörk og í raun heppnir að tapa ekki stærra," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis.
„Við fengum tvö brot á okkur í fyrri hálfleik, það segir sína sögu. Menn voru ekki tilbúnir í þessa baráttu. Við vorum algjörlega heillum horfnir og förum í gott helgarfrí og skoðum okkar gang í þessu. "
„Það er ekki ásættanlegt að tapa 2-5 á heimavelli en við komum sterkir til baka. Við lærum vel af þessu."
























