Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 07:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Myndband: Nýtt lag um Jürgen Klopp fyrir úrslitaleikinn
Þýski grínistinn Matze Knop hefur farið á kostum undanfarin ár en hann hefur hermt eftir fjölmörgum einstaklingum sem tengjast þýska boltanum. Bregður hann sér í alls konar gervi og gerir grín að fræga fólkinu.

Hann vakti heimsathygli þegar hann gaf út lagið "Numero Uno" sem fjallaði um Luca Toni, fyrrum sóknarmann Bayern München, en nú hefur grínistinn gefið út nýjan smell og í þetta sinn fjallar lagið um Jürgen Klopp, þjálfara Dortmund.

Lagið kallast "Kloppo You Rockstar" sem lýsir Klopp á skemmtilegan hátt en þetta er örlítil upphitun fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun þegar Dortmund mætir Bayern München á Wembley í Lundúnum.


Slapp
banner