Mike Phelan sem var aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hefur látið af störfum. Einnig markvarðaþjálfarinn Eric Steele.
David Moyes sem tekur formlega við sem knattspyrnustjóri Manchester United þann 1. júlí ætlar að taka inn starfsfólk sem hann velur.
David Moyes sem tekur formlega við sem knattspyrnustjóri Manchester United þann 1. júlí ætlar að taka inn starfsfólk sem hann velur.
Á heimasíðu United þakkar Moyes þeim Phelan og Steele fyrir þeirra störf hjá Manchester United og óskar þeim velfarnaðar í því sem þeir taka sér fyrir hendur.
Phelan er fyrrum leikmaður Manchester United og var í þjálfarateymi Manchester United frá 2001. Árið 2008 var hann færður upp í stöðu aðstoðarstjóra.
Eric Steele gekk í raðir félagsins 2008 sem markvarðaþjálfari í stað Tony Coton sem þurfti að láta af störfum vegna meiðsla.




