Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 24. maí 2013 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Robben: Verðum að vinna í þetta sinn
Arjen Robben, leikmaður Bayern München, segir að úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu sýni hversu sterkur þýski boltinn er orðinn.

Bayern München mætir Borussia Dortmund í úrslitaleiknum á Wembley á morgun en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem tvö þýsk lið eigast við í úrslitaleik keppninnar.

Og eftir að hafa fengið tvö silfur í Meistaradeildinni á síðustu þremur árum vill Robben loksins hirða gullið.

,,Almennt séð þá er þýska úrvalsdeildin að þróast mjög vel og liðin eru að standa sig stórkostlega," sagði Robben.

,,Það er engin tilviljun að það eru tvö þýsk lið í úrslitunum. Þó gæti allt breyst á næsta eða næstu tveimur árum. Þess vegna verðum við að grípa gæsina á meðan hún gefst og vinna úrslitaleikinn í þetta sinn."

,,Það myndi fullkomna tímabilið að vinna þennan titil. Við höfum allir verið að stefna að því, við erum alveg einbeittir á úrslitaleikinn og ekkert fær okkur stöðvað."


Úrslitaleikurinn hefst klukkan 18:45 á morgun.

Slapp
banner
banner