Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 17:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Stoke segir Begovic ekki á leið til Liverpool
Stoke hefur neitað fréttum um að markvörðurinn Asmir Begovic sé á leið til Liverpool.

Haft var eftir Begovic í bosnískum fjölmiðlum að hann stefndi á að hefja æfingar með Liverpool í júlí. Stoke hefur neitað þessum fréttum.

,,Umboðsmaður Asmir hringdi í mig um leið og þessar fréttir birtust. Hann fullvisaði mig um að Asmir þekkir ekki bosníska blaðamanninn sem skrifaði fréttina og hann hefur aldrei talað við hann," sagði Tony Scholes framkvæmdastjóri Stoke.

,,Þetta er algjör uppspuni og því miður hefur þetta birst í öllum dagblöðum landsins. Það er alltaf ákveðin óvissa þegar stjóri yfirgefur félagið og rangar fréttir í fjölmiðlum hjálpa ekki til."

Begovic sagðist á dögunum búast við að vera seldur frá Stoke í sumar en félagið keypti markvörðinn efnilega Jack Butland frá Birmingham City í janúar.
Slapp
banner
banner