Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 16:00
Magnús Már Einarsson
Godsamskipti
Myndin sem Van Persie sendi Morgan.
Myndin sem Van Persie sendi Morgan.
Mynd: Twitter
Gummi Ben er mættur á Wembley fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld.  Hann horfði á dómarana æfa á vellinum í dag.
Gummi Ben er mættur á Wembley fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld. Hann horfði á dómarana æfa á vellinum í dag.
Mynd: Twitter
Piers Morgan, sjónvarpsmaður í Bandaríkjunum, hefur reglulega talað um Robin van Persie á Twitter eftir að hann yfirgaf Arsenal í fyrra.

Morgan er mikill stuðningsmaður Arsenal og var sársvekktur að sjá Van Persie fara frá félaginu og verða enskur meistari með Manchester United.

Morgan birti í dag mynd á Twitter sem Van Persie sendi honum. Þar er Hollendingurinn að kyssa bikarinn og í texta með þar sem hann þakkar fyrir "stuðninginn".



Einar Hjörleifsson leikmaður Víkings Ó.:
Djöfull er maður að verða pirraður að vera æfa með þessa adidas b-týpu! Kominn tími á að græja þetta #stóraboltamáli #adidas #pepsi

Ágúst Þór Ágústsson þjálfari hjá Breiðabliki:
Get ekki orða bundist hvað Donni er að gera frábæra hluti þarna fyrir norðan. Best young coach in Iceland! #fact

Viðar Ingi Pétursson ‏fótboltaáhugamaður:
sem Napoli-manni gleður það mig mjög að #KingRafa sé að rúlla þarna niðureftir! #öruggdolla

Halldór Bogason ‏leikmaður KV:
Afhverju búast allir við einhverju svakalegu frá Gumma Stein í viking ó? Hann er i slakasta liði í pepsi og hefur bara sannað sig i 1.deild.

Emil Pálsson leikmaður FH:
Þetta er eitt það besta sem ég hef séð #áskorun @JohannLaxdal

Guðmundur Benediktsson íþróttalýsandi á Stöð 2 Sport:
Gíbralta í UEFA, ég hélt að þeir væru bara í sundinu!

George Elokobi ‏leikmaður Wolves:
Búinn með æfinguna mína í dag, tími til að setjast niður og hvíla #ÁmorgunKemurnýrDagur

Ryan Shawcross leikmaður Stoke:
Fór að horfa á Hangover 3 #mjögfyndin
Slapp
banner