Nils Petersen er endanlega genginn í raðir Werder Bremen frá Bayern München, en þetta var staðfest í gær.
Petersen, sem er 24 ára sóknarmaður, var á láni hjá Bremen allt tímabilið þar sem hann varð markahæstur í liðinu með 11 mörk í 35 leikjum.
Petersen, sem er 24 ára sóknarmaður, var á láni hjá Bremen allt tímabilið þar sem hann varð markahæstur í liðinu með 11 mörk í 35 leikjum.
Hann kom til Bayern árið 2011 frá Energie Cottbus en tókst ekki að festa sig í sessi hjá þýska stórveldinu og var hann því lánaður til Bremen.
Nú er ljóst að Petersen er ekki í framtíðaráformum Pep Guardiola, verðandi þjálfara Bayern, og hefur Bremen nú gengið frá kaupunum.
Talið er að kaupverðið nemi um fjórar milljónir evra en Petersen skrifaði undir fjögurra ára samning.


