Carlo Ancelotti segist ætla að táka árs frí ef Real Madrid ákveður að láta hann fara eftir tímabilið.
„Framtíð mín er skýr í hausnum á mér" sagði Ancelotti eftir 7-3 sigur á Getafe.
„Ég held áfram sem þjálfari Real Madrid eða ég tek mér eins árs frí."
Ancelotti vonast til að ákvörðun verði tekin snemma í næstu viku.
„Ég held að við munum hittast í næstu viku og ræða málin. Þetta er fótbolti. Það er skiljanlegt að það séu efasemdir eftir að hafa ekki unnið neina titla, sérstaklega hjá félagi eins og Real Madrid."
„Ég vil vera áfram. Ef Real Madrid segir að ég geti það ekki þá verð ég ekki glaður en svona virkar fótboltinn."
Athugasemdir