Manchester United ætlar ekki að nýta sér ákvæði í lánssamningi Radamel Falcao og kaupa hann í sínar raðir í sumar. Daily Mail greinir frá þessu í dag.
Falcao hefur verið á láni frá Monaco en hann hefur ekki náð að slá í gegn á Old Trafford.
Falcao hefur verið á láni frá Monaco en hann hefur ekki náð að slá í gegn á Old Trafford.
Kolumbíumaðurinn er ekki í leikmannahópi Manchester United gegn Hull í dag.
Falcao er sjálfur til í að taka á sig launalækkun til að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni en United vill þrátt fyrir það ekki halda honum.
Framtíð Falcao er í óvissu, Juventus hefur áhuga á að fá hann á láni en Monaco vill helst losna við hann af launakrá þar sem laun hans eru mjög há.
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá lokaumferðinni
Athugasemdir