Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 24. maí 2015 15:43
Magnús Már Einarsson
Fellaini byrjar næsta tímabil í banni
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, miðjumaður Manchester United, endaði tímabilið ekki vel í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn Hull í dag.

Fellaini kom inn á sem varamaður á 59. mínútu en átján mínútum síðar fékk hann rauða spjaldið.

Belginn traðkaði þá á Paul McShane varnarmanni Hull og var verðskuldað rekinn af velli.

Fellaini er á leið í að minnsta kosti þriggja leikja bann fyrir athæfi sitt .

Þar sem um er að ræða leik í lokaumferðinni mun leikbann Fellaini færast yfir á næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner