Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. maí 2015 15:13
Arnar Geir Halldórsson
Gonzalo Castro til Dortmund (Staðfest)
Nýjasti liðsmaður Borussa Dortmund
Nýjasti liðsmaður Borussa Dortmund
Mynd: Getty Images
Borussa Dortmund hefur gengið frá kaupum á þýska miðjumanninum Gonzalo Castro frá Bayer Leverkusen.

Castro sem er 27 ára gamall hefur leikið allan sinn feril með Bayer Leverkusen og var í lykilhlutverki á nýliðnu tímabili.

Kaupverðið er 12 milljónir evra en Castro átti eitt ár eftir af samningi sínum við Leverkusen. Hann gerir fjögurra ára samning við Dortmund.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun en mig langaði í nýja áskorun. Ég hef átt frábæran tíma hjá Leverkusen og félagið verður í hjarta mínu að eilífu", sagði Castro þegar félagaskiptin voru tilkynnt.

Castro á 5 A-landsleiki fyrir heimsmeistara Þýskalands en var ekki í landsliðshópnum á HM í Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner