Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 24. maí 2015 17:47
Elvar Geir Magnússon
Hvert fer Danny Ings?
Ings hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Burnley.
Ings hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Burnley.
Mynd: Getty Images
Eitt verst varðveitta leyndarmál fótboltans var opinberað í dag en Danny Ings, sóknarmaður Burnley, hefur staðfest að hann fari frá félaginu í sumar.

Ings kvaddi með því að skora sigurmark Burnley gegn Aston Villa í lokaumferðinni en Burnley féll.

Ings segist hafa verið ákveðinn í að ljúka síðasta leik sínum fyrir Burneley með stæl.

„Þetta var tilfinningaríkur dagur og ég er í skýjunum með að hafa náð að skora þetta mark fyrir framan stuðningsmenn okkar," segir Ings sem meðal annars hefur verið orðaður við Real Sociedad og Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner