Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. maí 2015 10:00
Stefán Haukur
Monk býst við því að Michu muni fara
Michu var á láni hjá Napoli út tímabilið.
Michu var á láni hjá Napoli út tímabilið.
Mynd: EPA
Gary Monk, þjálfari Swansea, býst við því að Michu muni yfirgefa félagið í sumar eftir að hafa verið á láni hjá Napoli út tímabilið.

Michu á eitt ár eftir á samningi sínum hjá Swansea en hann hefur ekki spilað leik síðan í október vegna meiðsla.

Michu skoraði 22 mörk á sínu fyrsta tímabili sínu hjá Swansea þegar hann kom frá Rayo Vallecano fyrir 2 milljónir punda.

„Við ræðum málin í sumar og sjáum hvað hann langar að gera og hvað framtíð hans ber í skauti sér," sagði Monk.

„Michu ákvað sjálfur að hann langaði að fara á láni til Napoli og ég studdi þá ákvörðun."

„Ég efast um að skoðun hans hafi breyst eftir að hafa verið í burtu í heilt ár. Ég held að hann vilji prófa eitthvað nýtt."

Athugasemdir
banner
banner
banner