sun 24. maí 2015 07:00
Stefán Haukur
Pellegrini: Ég kaus Mourinho sem stjóra ársins
Pellegrini segist hafa kosið Mourinho.
Pellegrini segist hafa kosið Mourinho.
Mynd: EPA
Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, sagði á blaðamannafundi að hann hafi kosið Jose Mourinho sem stjóra ársins ensku deildinni.

„Ég kaus Mourinho því ég veit að það sem hann hefur afrekað á þessu tímabili er frábært," sagði Pellegrini.

Pellegrini var ekki kosinn sem besti stjórinn í fyrra þrátt fyrir að hafa unnið tvo titla með Manchester City og segist hann ekki vita ástæðuna fyrir því að hann var ekki kosinn.

„Ég var ekki kosinn sem besti stjórinn í fyrra en ég er samt ánægður með það sem ég gerði á því tímabili vegna þess að við unnum tvo titla og spiluðum fallegan fótbolta og skoruðum mörg mörk," sagði Pellegrini léttur í lund.

Athugasemdir
banner
banner
banner