Chris Ramsey, stjóri QPR, var pirraður eftir leik í dag. QPR var fallið fyrir lokaumferðina en liðið fékk 5-1 skell gegn Leicester.
„Þetta var erfiður dagur og við vörðumst eins og skólastrákar. Það var ekki mikið jákvætt og við gerðum of mörg mistök í vörninni," segir Ramsey.
„Þetta var erfiður dagur og við vörðumst eins og skólastrákar. Það var ekki mikið jákvætt og við gerðum of mörg mistök í vörninni," segir Ramsey.
„Það var ánægjulegt að sjá hversu margir stuðningsmenn okkar ferðuðust í þennan leik en þeir fengu ekki það sem þeir vildu. Við viljum sjá til þess að næsta tímabil verði gleðilegra fyrir þá."
„Það er ekkert leyndarmál að það verða stórar breytingar í ljósi stöðunnar. Það þarf einhverju að breyta til að koma okkur aftur upp í deildina þar sem við verðum að vera."
Athugasemdir