Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. maí 2015 15:53
Arnar Geir Halldórsson
Svíþjóð: Eiður Aron og Hjörtur Logi á sigurbraut
Allt að koma hjá Eiði og félögum eftir erfiða byrjun
Allt að koma hjá Eiði og félögum eftir erfiða byrjun
Mynd: Eyjafréttir - Júlíus Ingason
Örebro vann sinn annan leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í dag en liðið fór í gegnum fyrstu átta umferðirnar án þess að sigra leik.

Eiður Aron Sigurbjörnsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Örebro og nældi sér í gult spjald í 1-0 sigri á Gefle. Hjörtur Logi Valgarðsson byrjaði á bekknum og kom inná í uppbótartíma.

Nýkrýndir bikarmeistarar Gautaborg unnu góðan útisigur á botnliði Halmstad 2-1. Hjálmar Jónsson lék allan leikinn fyrir Gautarborg.

Gautaborg er í efsta sæti deildarinnar en Örebro er enn í fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner