Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 24. maí 2016 12:20
Jóhann Ingi Hafþórsson
Borgunarbikar kvenna: Selfoss fær Val í heimsókn
Selfoss fær Val í heimsókn í stærsta leik umferðarinnar.
Selfoss fær Val í heimsókn í stærsta leik umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var dregið í 16 liða úrslitum Borgunarbikar kvenna. Drátturinn fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Öll liðin í Pepsi deildinni sem og sex lið í 1. deildinni voru með í dráttinum.

Stjarnan er núverandi bikarmeistari, eftir sigur á Selfoss í úrslitaleik í fyrra og hefur því titil að verja en liðin í úrvalsdeildinni koma inn í umferðina. Stjarnan dróst á móti grönnum sínum í FH.

Selfoss er búið að tapa úrslitaleiknum tvö ár í röð og ætla sér væntanlega skrefinu lengra í ár. Þær fengu Val sem var stærsti leikur umferðarinnar.

16 liða úrslit Borgunarbikars kvenna:
FH - Stjarnan
HK/Víkingur - Þróttur
KR - ÍBV
Haukar - ÍA
Selfoss - Valur
Keflavík - Breiðablik
Fylkir - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Þór/KA - Grindavík

Leikirnir fara fram 11. og 12. júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner