Fram 2 - 0 HK
1-0 Ivan Bubalo ('29)
2-0 Brynjar Kristmundsson ('63)
1-0 Ivan Bubalo ('29)
2-0 Brynjar Kristmundsson ('63)
Fram tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins með 2-0 sigri gegn HK á Laugardalsvelli í kvöld.
Ivan Bubalo skoraði fyrra mark Framara þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum og var staðan 1-0 í leikhléi.
Brynjar Kristmundsson tvöfaldaði síðan forystu Framara þegar tæpar 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum, einungis þremur mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður, og reyndust lokatölur 2-0.
Fram fer því áfram í næstu umferð á kostnað HK.
Athugasemdir