Eiður Benedikt Eiríksson, þjálfari Fylkis, var spenntur fyrir að fá heimsókn frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni í 16 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna í kvöld.
Hann viðurkennir hins vegar að vita afar fátt um andstæðinginn.
Hann viðurkennir hins vegar að vita afar fátt um andstæðinginn.
„Hrikalega vel, það skipti ekki öllu máli hvaða liði við myndum mæta, við vildum fá heimaleik."
„Ég ætla ekki að ljúga af þér, ég veit ekki neitt um hann. Þetta er bikarinn, það getur allt gerst en við erum sigurstranglera liðið."
Hann hefði viljað sjá betri byrjun frá sínu liði en Fylkir er með eitt stig eftir tvo fyrstu leikina.
„Stigasöfnunin hefur ekki verið nógu góð. Við þurfum að fara í stigasöfnun og það skiptir ekki öllu máli hvort við höfum verið að spila vel."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir