Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, var nokkuð brött þegar dregið var í 16 liða úrslitum Borgunarbikar kvenna í dag.
Selfoss fékk heimaleik gegn Val í stærsta leik umferðarinnar og er hún spennt fyrir verkefninu.
Selfoss fékk heimaleik gegn Val í stærsta leik umferðarinnar og er hún spennt fyrir verkefninu.
„Ég held það, Valur og Selfoss eru með svipuð lið, það eru alltaf hörkuleikir þegar við mætum Val og síðast bikarleikurinn. Þetta verður hörkuleikur."
Hún segir þetta góðan tíma til að mæta Val, áður en þær ná að slípa saman mikið breyttu liði.
„Valsliðið er klárlega með eitt af sterkurstu liðunum á pappírunum. Þær hafa kannski ekki sýnt það í leikjum en ég hef mikla trú á að þær gæti komist á skrið eftir pásuna. Það er gott að mæta þeim núna áður en þær ná að slípa sér saman."
Hún segir Selfoss vera stórhuga í ár.
„Við getum verið í toppbaráttunni, við erum með sama mannskap og í fyrra nema við misstum Dagný og Telmu en við fengum tvo, mjög sterka útlendinga í staðin.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir