Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. maí 2016 14:42
Magnús Már Einarsson
Joey Barton í Rangers (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Joey Barton hefur skrifað undir tveggja ára samning við skoska félagið Rangers.

Hinn 33 ára gamli Barton hjálpaði Burnley upp í ensku úrvalsdeildina á dögunum.

Barton var valinn besti leikmaður Burnley á tímabilinu en félagið bauð honum nýjan samning.

Barton leist betur á að fara til Skotlands og þar verður hann næstu tvö árin.

Rangers endurheimti sæti sitt í skosku úrvalsdeildinni á dögunum eftir að hafa verið dæmt niður í D-deild árið 2012 eftir gjaldþrot.
Athugasemdir
banner
banner
banner