UEFA hefur sektað Liverpool og Manchester United fyrir köll stuðningsmanna þegar liðin mættust í Evrópudeildinni. Þá er einnig sekt fyrir að lauslegum hlutum var kastað inn á völlinn.
Ljót köll voru tengd München flugslysinu og harmleiknum á Hillsborough. Átta leikmenn United létust í flugslysinu 1958 og árið 1989 létust 96 stuðningsmenn Liverpool í troðningi á undanúrslitaleik FA-bikarsins.

Þá þarf Liverpool að borga fyrir skemmdir sem stuðningsmenn liðsins ollu á Old Trafford.
Hvort félag hefur verið sektað um 44 þúsund pund tæplega, um 8 milljónir íslenskra króna.
Athugasemdir