„Þetta er ógeðslega sárt, hrikalega sárt. En það þýðir ekkert að væla yfir þessu", sagði Jóhann Unnar þjálfari Hauka eftir 1-1 jafntefli við Fylki í kvöld.
Haukar náðu forystunni snemma leiks og vörðust vel út leikinn en Fylkir náðu síðan að jafna leikinn með aukaspyrnu á lokamínútunni.
„Fyrsta stigið í hús þannig það er auðvitað jákvætt, en samt sem áður alveg ógeðslegt að fá á sig mark á síðustu sekúndu leiksins", sagði Jóhann
Aðspurður hvert upplegggið hafi verið sagði Jóhann að planið hafa verið að koma boltanum fljótt upp.
„Það var auðvitað bara planið að koma boltanum fljótt upp í ákveðin svæði, gekk misvel, en það var klárlega planið".
„Í byrjun leiks sáum við strax að það gekk ekki ákveðinn liðsuppstilling og því breyttum við því strax og þá varð margt mikið betra."
Jóhann sagði að liðið sitt hafi gefið eftir í seinni hálfleiknum.
„Í seinni hálfleiknum fórum við að spila frekar neðarlega og gerðum það full snemma og hleyptum þeim inn í leikinn."
„Fyrsta stigið er samt eitthvað sem við getum tekið úr þessum leik, og við verðu að byggja á þessu".
Eins og fram kemur þá var þetta fyrsta stig Hauka í deildinni í sumar en það fjórða hjá Fylki.
Athugasemdir