Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 24. maí 2017 13:56
Magnús Már Einarsson
Logi Ólafs tekinn við Víkingi R. (Staðfest)
Logi er mættur aftur í Pepsi-deildina.
Logi er mættur aftur í Pepsi-deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Logi Ólafsson er tekinn við sem þjálfari Víkings en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, staðfestir þetta í samtali við 433.is.

Eins og Fótbolti.net greindi frá í morgun þá hafa viðræður við Loga staðið yfir. Víkingar hafa verið í þjálfaraleit eftir að Milos Milojevic sagði upp störfum á föstudaginn. Milos tók síðan við sem þjálfari Breiðabliks í fyrradag.

Dragan Kazic og Hajrudin Cardaklikja stýrðu Víkingi gegn Breiðabliki á sunnudag en nú tekur Logi við starfinu. Dragan og Cardaklija verða báðir áfram í þjálfarateyminu.

Logi er þaulreyndur þjálfari en hann stýrði síðast Stjörnunni árið 2013.

Logi þekkir til hjá Víkingi en hann þjálfaði liðið frá 1990 til 1992. Árið 1991 varð Víkingur Íslandsmeistari undir hans stjórn.

Á ferli sínum hefur hann einnig þjálfað íslenska landsliðið, ÍA, KR, FH og Selfoss til að mynda.

Í sumar hefur Logi starfað sem sérfræðingur í Pepsi-mörkunum líkt og hann gerði einnig í fyrra.

Næsti leikur Víkings er gegn KA á Akureyri á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner