mið 24. maí 2017 14:15
Magnús Már Einarsson
Newcastle kaupir Atsu (Staðfest)
Sáttur.
Sáttur.
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur keypt kantmanninn Christian Atsu frá Chelsea en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Hinn 25 ára gamli Atsu var á láni hjá Newcastle á nýliðnu tímabili en hann hjálpaði liðinu að vinna Championship deildina.

Atsu skoraði fimm mörk í 35 leikjum með Newcastle á tímabilinu.

„Við erum ánægðir með að kaupa góðan leikmann," sagði Rafael Benitez, stjóri Newcastle, eftir að skrifað var undir.

Atsu er frá Gana en hann kom til Chelsea árið 2013. Hann náði aldrei að spila með aðalliði félagsins en á tíma sínum þar fór hann auk Newcastle til Vitesse Arnhem, Everton, Bournemouth og Malaga á láni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner