Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. maí 2017 21:12
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-kvenna: Berglind með þrennu í stórsigri - Dramatík í Árbæ
Fanndís Friðriksdóttir fagnar ásamt leikmönnum Breiðabliks. Liðið er á toppnum með 15 stig.
Fanndís Friðriksdóttir fagnar ásamt leikmönnum Breiðabliks. Liðið er á toppnum með 15 stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir fóru fram í 6. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld en Breiðablik rúllaði yfir KR á meðan Haukar náðu í fyrsta stigið sitt í deildinni.

Breiðablik er í fínum málum eftir 6-0 sigur á KR á Kópavogsvelli í dag en liðið er komið á toppinn með honum. Fanndís Friðriksdóttir kom Blikum yfir með marki úr vítaspyrnu á 2. mínútu áður en Berglind Björg Þorvaldsdóttir bætti við öðru á 29. mínútu.

Fanndís bætti við þriðja markinu aðeins mínútu síðar og á 35. mínútu gerði Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir fjórða markið.

Berglind Björg fullkomnaði þrennu sína svo með tveimur mörkum í byrjun síðari hálfleiks og 6-0 sigur staðreynd. Liðið er á toppnum með 15 stig eftir sex leiki en KR í neðsta sæti með ekkert stig.

Fylkir og Haukar gerðu 1-1 jafntefli á Fylkis-vellinum. Marjani-Hing Glover gerði mark Hauka á 18. mínútu og stefndi allt í fyrsta sigur liðsins en Jasmín Erla Ingadóttir skemmdi teitið fyrir Haukum með því að jafna metin í uppbótartíma síðari hálfleiks.

Fylkir er því í áttunda sæti með 4 stig en Haukar í níunda með aðeins 1 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Breiðablik 6 - 0 KR
1-0 Fanndís Friðriksdóttir ('2, víti )
2-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('29 )
3-0 Fanndís Friðriksdóttir ('30 )
4-0 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('35 )
5-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('56 )
6-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('63 )

Fylkir 1 - Haukar
0-1 Marjani-Hing Glover ('18 )
1-1 Jasmín Erla Ingadóttir ('90 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner