Flestir leikmenn fagna því þegar tímabilinu lýkur og skella sér í utanlandsferðir eða njóta þess að slaka á í faðmi fjölskyldu eða vina.
Það átti ekki við um Tyrone Mings, varnarmann Bournemouth, en hann langaði rosalega að komast út í smá fótbolta í gærkvöldi og tilkynnti það á samfélagsmiðlinum Twitter.
Þannig fór að stuðningsmaður svaraði honum og bauð honum að taka þátt með þeim. Mings tók hann á orðinu, mætti galvaskur og spriklaði með stuðningsmönnunum sem voru hæstánægðir með kappann. Þeir og fengu meira að segja myndir af sér með honum eftir átökin og birtu þær á Twitter.

@OfficialTM_3 Littledown 8:30 mate x
— DONTBUYTHESUN.#jft96 (@alexdeutsch) May 23, 2017
@OfficialTM_3 @CareyPaton pic.twitter.com/gj9WGLofHF

Athugasemdir