Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
   fim 24. maí 2018 14:00
Arnar Daði Arnarsson
Jói Berg: Hef fulla trú á að við getum gert góða hluti á HM
Icelandair
Jóhann Berg Guðmundsson á æfingu Íslands í dag.
Jóhann Berg Guðmundsson á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta verkefni er ansi stórt og það er mikil tilhlökkun," sagði Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsmaður í viðtali við Fótbolta.net í dag fyrir æfingu á Laugardalsvelli.

Jóhann Berg mætti í dag á sína fyrstu æfingu fyrir HM í Rússlandi eftir gott tímabil með Burnley.

„Það gekk mjög vel hjá mér og mínu liði. Það er gaman að koma með mikið sjálfstraust og í góðu formi inni í þetta verkefni. Auðvitað vill maður vera í sínu besta standi á HM."

Burnley kom öllum að óvörum með því að landa sæti í Evrópudeildinni í vetur. „Það voru ekki margir sem bjuggust við því. Markmið okkar var fyrst og fremst að halda sætinu í deildinni. Að ná 7. sæti er magnað afrek."

Burnley hefur leik í Evrópudeildinni í júlí en Jói verður ekki með þar.

„Ég fæ mitt frí eftir HM. Það er nauðsynlegt. Ég efast stórlega um að ég nái fyrstu leikjunum í Evrópudeildinni. Núna er ég að hugsa um HM og hitt kemur seinna," sagði Jóhann.

„Það er ótrúlegt afrek að við séum á leiðinni á HM og við þurfum að njóta þess og hafa gaman að þessu. Ég hef fulla trú á að við getum gert góða hluti þarna."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner